Vinna að heimildarkvikmynd
Mynd tekin af Paul Taggart og Lindsay Blatt
Þau Lindsay Blatt og Paul Taggart vöktu athygli fólks í Laufskálarétt er þau hlupu um með myndavélar á öxl og tóku að því er virtist ljósmyndir í gríð og erg.
Sannleikurinn er hinsvegar sá að þau voru bæði að taka ljósmyndir og myndbrot í heimildarmynd sem þau eru að vinna um stóðréttir á Íslandi.
Verkefnið heitir Herd In Iceland og er samvinnuverkefni þeirra tveggja. Þau komu fyrst haustið 2010 þar sem þau tóku upp mikið af efni úr stóðréttum. Verkefnið er tvennskonar, annars vegar ljósmyndaverkefni þar sem tekið er bæði á stafrænu formi og eins á blaðfilmu 4 x 5” og hins vegar er verkefnið heimildamyndartaka.
Í heimildamyndartöku verkefninu er leitast við bæði að sýna hvernig stóðréttir fara fram og hins vegar hvernig hrossarækt og hefðir berast ættliða á milli.
Í heimsókn sinni í ár hefur aðal áhersla verið að ná ljósmyndum á blaðfilmu svokallaðar portret myndir og hins vegar fyrir heimildamyndatökuna að ná viðtölum við hestamenn og hrossabændur og ættingja þeirra.
Þau vona að eftirvinnslu á heimildamyndinni ljúki að mestu á næstu sex mánuðum og von sé að heimildamyndin og ljósmyndasýningar verði tilbúnar sumar 2012.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH