Landsmót 2024 Enginn skortur á alhliða gæðingum

  • 19. júní 2024
  • Fréttir
Álfamær frá Prestsbæ sýnd af Árna Birni efst á stöðulista í A-flokki

Landsmót Hestamanna er framundan í Víðidal í Reykjavík dagana 1.-7. júlí. Að loknum úrtökum hestamannafélaga er gaman að velta fyrir því sér hvernig staðan er á stöðulistum fyrir mótið en ljóst er að mikið gæðingaval verður á mótinu.

Í A-flokki skal sýna tölt á frjálsum hraða, brokk, fet, stökk og skeið. Einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið eru þá einnig gefnar og gilda þær tvöfalt ásamt tölti og skeiði. Í sérstakri forkeppni er sýnt tölt, brokk og skeið.

Álfamær frá Prestsbæ sýnd af Árna Birni Pálssyni hlaut hæstu einkunn vorsins, 8,88. Annar á stöðulistanum er Þráinn frá Flagbjarnarholti sem sýndur er af Þórarni Eymundssyni og hlaut hann 8,82 í einkunn. Þriðju á stöðulistanum er svo Leynir frá Garðshorni á Þelamörk með 8,79 í einknn sýndur af Eyrúnu Ýr Pálsdóttur.

Sérstök forkeppni í A-flokki fer fram þriðjudaginn 2.júlí og milliriðlar fimmtudaginn 4.júlí. Sigurvegari er svo krýndur á úrslitadegi Landsmóts þann 7.júlí.

30 efstu hestar á stöðulistum í A-flokki.

# Knapi Hross Einkunn
1 Árni Björn Pálsson IS2015201167 Álfamær frá Prestsbæ 8,88
2 Þórarinn Eymundsson IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti 8,82
3 Eyrún Ýr Pálsdóttir IS2015164068 Leynir frá Garðshorni á Þelamörk 8,79
4 Guðmundur Björgvinsson IS2015181912 Gandi frá Rauðalæk 8,77
5 Ásmundur Ernir Snorrason IS2014181118 Askur frá Holtsmúla 1 8,75
6 Árni Björn Pálsson IS2015186939 Seðill frá Árbæ 8,74
7 Teitur Árnason IS2012181660 Atlas frá Hjallanesi 1 8,74
8 Fredrica Fagerlund IS2016155640 Salómon frá Efra-Núpi 8,74
9 Sigursteinn Sumarliðason IS2017186512 Liðsauki frá Áskoti 8,71
10 Bjarni Jónasson IS2014157768 Spennandi frá Fitjum 8,69
11 Sigurður Sigurðarson IS2011188560 Rauðskeggur frá Kjarnholtum I 8,69
12 Finnbogi Bjarnason IS2013158455 Einir frá Enni 8,68
13 Sigurður Vignir Matthíasson IS2009157783 Hlekkur frá Saurbæ 8,67
14 Elvar Þormarsson IS2015280688 Framtíð frá Forsæti II 8,67
15 Hlynur Guðmundsson IS2018184438 Kraftur frá Svanavatni 8,66
16 Viðar Ingólfsson IS2017182466 Rúrik frá Halakoti 8,66
17 Skapti Steinbjörnsson IS2014257354 Lokbrá frá Hafsteinsstöðum 8,66
18 Daníel Jónsson IS2011137210 Goði frá Bjarnarhöfn 8,66
19 Björg Ingólfsdóttir IS2013158707 Kjuði frá Dýrfinnustöðum 8,65
20 Sigurbjörn Bárðarson IS2008186651 Nagli frá Flagbjarnarholti 8,65
21 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir IS2014258841 Esja frá Miðsitju 8,64
22 Elín Magnea Björnsdóttir IS2010125110 Glúmur frá Dallandi 8,64
23 Guðmundur Björgvinsson IS2016284171 Þrá frá Fornusöndum 8,64
24 Bergrún Ingólfsdóttir IS2010181398 Roði frá Lyngholti 8,63
25 Daníel Gunnarsson IS2014158840 Strákur frá Miðsitju 8,63
26 Hafþór Hreiðar Birgisson IS2014125087 Þór frá Meðalfelli 8,63
27 Eyrún Ýr Pálsdóttir IS2011258623 Nóta frá Flugumýri II 8,63
28 Ólafur Andri Guðmundsson IS2016286910 Móeiður frá Feti 8,63
29 Sylvía Sigurbjörnsdóttir IS2008187685 Villingur frá Breiðholti í Flóa 8,62
30 Viðar Ingólfsson IS2015158097 Vigri frá Bæ 8,62

Geisli frá Sælukoti vann A-flokk á Landsmóti tvisvar sinnum sýndur af Steingrími Sigurðssyni  en Sigurður Sigurðarson hefur einnig unnið A-flokk tvisvar sinnum á þeim Kolskeggi frá Kjarnholtum og Fróða frá Staðartungu.

Sigurvegarar A-flokks gæðinga á Landsmóti fengið af vef LH.

A-flokkur

2022 – Kolskeggur frá Kjarnholtum 9,01, knapi Sigurður Sigurðarson
2018 – Hafsteinn frá Vakurstöðum 9,09, knapi Teitur Árnason
2016 – Hrannar frá Flugumýri 9,16, knapi Eyrún Ýr Pálsdóttir
2014 – Spuni frá Vesturkoti 9,30, knapi Þórarinn Ragnarsson
2012 – Fróði frá Staðartungu 8,94, knapi Sigurður Sigurðarson
2011 – Ómur frá Kvistum 8,98, knapi Hinrik Bragason
2008 – Aris frá Akureyri 8,86, knapi Árni Björn Pálsson
2006 – Geisli frá Sælukoti 9,17, knapi Steingrímur Sigurðsson
2004 – Geisli frá Sælukoti, knapi Steingrímur Sigurðsson
2002 – Adam frá Ásmundarstöðum 8,96, knapi Logi Þ. Laxdal
2000 – Ormur frá Dallandi 9,22, knapi Atli Guðmundsson
1998 –  Galsi frá Sauðárkróki 8,75, knapi Baldvin A. Guðlaugsson
1994 – Dalvar frá Hrappsstöðum 8,75, knapi Daníel Jónsson
1990 – Muni frá Ketilsstöðum 9,26, knapi Trausti Þór Guðmundsson
1986 – Júní frá Syðri-Gróf 8,60, knapi Einar Öder Magnússon
1982 – Eldjárn frá Hvassafelli 8,67, knapi Albert Jónsson
1978 – Skúmur frá Stórulág 8,94, knapi Sigfinnur Pálsson
1974 – Núpur frá Kirkjubæ 9,24, knapi Sigurfinnur Þorsteinsson
1970 – Blær frá Langholtskoti 8,78, knapi Hermann Sigurðsson

 

*Birt með fyrirvara um að öll félög hafi skilað inn niðurstöðum af sínum mótum.
*Miðað við stöðulista fimmtudaginn 20. júní.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link