Holland Börkur frá Enni efstur á kynbótasýningu í Hollandi

  • 20. júní 2024
  • Fréttir

Börkur frá Enni á flugaskeiði Ljósmynd: Henk & Patty

Kynbótasýning fór fram í Hollandi þann 15.-16. júní.

Dómarar á sýningunni voru þær Elsa Albertsdóttir og Nina Bergholtz.  Alls voru sýnd 29 hross á sýngunni og mörg þeirra hlutu góðar einkunnir.

Hæst dæmda hross sýningarinnar var átta vetra gamall stóðhestur, Börkur frá Enni, ræktaður af Haraldi Þór Jóhannessyni og Eindísi Kristjánsdóttur en í eigu Mw. I.M. Weijers. Börkur er undan Trymbli frá Stóra-Ási og Sendingu frá Enni. Hann hlaut 8,16 fyrir sköpulag og 8,51 fyrir hæfileika þar bar hæst 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja, sýnandi var Mw. M. Duintjer.

Þá má einnig nefna sex vetra gamlan stóðhest Sólon frá Álftakoti, ræktaður af Dhr. G.J. Hoogenboom og Dhr. T.G. Hoogenboom. Hann er undan Dívari från Lindnäs og Skák frá Þverá II. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,04 og fyrir hæfileika 8,34 í aðaleinkunn 8,23 sýndur af Mw. E. van der Veer.

Öll hross á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn.

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi
IS2016158455 Börkur frá Enni 8.16 8.51 8.39 Mw. M. Duintjer
NL2018100102 Sólon frá Álftakoti 8.04 8.34 8.23 Mw. E. van der Veer
DE2017263126 Rösk vom Friedrichstein 8.07 8.21 8.16 Þórður Þorgeirsson
IS2015186183 Safír frá Eystra-Fróðholti 8.04 8.22 8.16 Maaßen, Carina
IS2017201639 Anna frá Álftakoti 8.41 7.99 8.14 Þórður Þorgeirsson
IS2018136671 Úlfur frá Borgarnesi 8.37 8.01 8.14 Finnur Kristjánsson
DK2018200198 Sæla fra Rødstenskær 8.06 8.12 8.1 Þórður Þorgeirsson
DE2019210347 Nýpa von Akurgerdi 8.08 7.99 8.02 Þórður Þorgeirsson
IS2014101570 Hemlir frá Broddaborg 8.14 7.88 7.97 Mw. F. Struik
IS2016287570 Dáð frá Austurási 8.11 7.86 7.95 Þórður Þorgeirsson
IS2019186587 Öxar frá Ásmundarstöðum 3 8.39 7.67 7.92 Styrmir Árnason
DE2016256092 Gyðja von Ögn 7.84 7.95 7.91 Þórður Þorgeirsson
NL2017100094 Arion frá Rósagrund 8.05 7.81 7.89 Mw. C.M. Roosen
DE2019143287 Framherji von Federath 8.16 7.71 7.87 Styrmir Árnason
IS2017237729 Teista frá Miðhrauni 8.21 7.63 7.84 Elías Þórhallsson
PL2015101016 Álfur z Lótus 7.84 7.8 7.81 Dhr. A.P. den Uijl
DE2018234989 Bylgja vom Ostetal 7.8 7.79 7.8 Þórður Þorgeirsson
IS2010286075 Hnoppa frá Árbakka 7.91 7.72 7.79 Þórður Þorgeirsson
DE2017143257 Aðall von Federath 7.89 7.72 7.78 Styrmir Árnason
DE2017243956 Alda von Federath 8.16 7.42 7.68 Styrmir Árnason
NL2013200185 Alda frá Sælandi 7.93 7.4 7.59 Tom Buijtelaar
NL2018200118 Júlía frá Rósagrund 7.59 7.52 7.54 Mw. C.M. Roosen
IS2013138321 Grímur frá Snóksdal I 8.06 7.02 7.39 Sophia Hübl
IS2019187807 Mídas frá Blesastöðum 1A 7.96 6.87 7.25 Styrmir Árnason
NL2019100109 Álfadans frá Lyngheiði 7.77 Mw. T. Könning
NL2019100065 Diljar frá Nýttland 8.55 Mw. S. Kosse
NL2019100133 Feykir frá Wolfshoek 7.83 Mw. E. van der Veer
NL2013200027 Vanadís frá Eldsmið 7.51 Mw. R.M.K. de Groot
GB2007203013 Þeista from Cannahars Mw. S.M. Pesie

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link