„Samvinna og samstaða yljar“
Kvöldsólin skartaði sínu fegurst í verðlaunaafhendingu í 100 metra skeiði
Hið geysivinsæla Reykjavíkurmeistaramót í hestaíþróttum fór fram í síðustu viku í Víðidal félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks. Alls voru skráningar á mótið 850 talsins og keppendur 350. „Mótið er auðvitað stórmót ár hvert og ánægjulegt hversu vinsælt það er hjá keppendum. Ég held að það sé óhætt að segja að þetta sé sterkasta mót ársins. Mótið tókst vel og var keppt í 43 keppnisgreinum og fjölmörgum flokkum.“ Segir Hilda Karen Garðarsdóttir mótsstjóri í samtali við Eiðfaxa.
„Hápunktur mótsins er jafnan töltúrslitin í meitaraflokknum en það er eiginlega rúsínan í pylsuendanum og stendur upp úr á hverju ári. Nú í ár var 150m skeiðið einn af hápunktum mótsins þar sem Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II fór sprettfærið á nýju Íslandsmeti, 13,62 sek. Aldeilis magnaður árangur hjá Konráði á höfðingjanum Kjarki.“
Fjölmargir starfsmenn koma að móti sem þessu og allt þarf að smella svo vel gangi. „Það sem yljar manni alltaf eftir svona stórmót er samvinna og samskipti starfsmanna mótsins, keppenda og aðstandenda. Mótið er knúið áfram af vönu fólki í hverju rúmi sem býður fram krafta sína í sjálfboðavinnu takk fyrir. Við búum mjög vel hér í Fáki og þetta fólk er klárt í næsta gigg líka, sem er auðvitað landsmót í byrjun júlí í samvinnu við Sprett. Ég veit að þar er sömu sögu að segja, þar er til eðalfólk vant mótahaldi og klárt í slaginn.“

Hilda Karen Garðarsdóttir hefur í nægu að snúast en hún var mótsstjóri á Reykjavíkurmeistaramóti og verður það einnig á Landsmóti
Það styttist óðum í að Landsmót hestamann fari fram í Víðidalnum, en mótið hefst þann 1.júlí. „Stemningin er að magnast svakalega þessa dagana, maður fann sannarlega fyrir því alla síðustu viku á Reykjavíkurmeistaramótinu. Börnin og unglingarnir eru sennilega spenntasti hópurinn og margir að upplifa sitt fyrsta landsmót. Það verður sérlega ánægjulegt að taka á móti þeim. Annars eru allir að keyra stemninguna í gang, kynbótasýningar klárast í vikunni og sýningarskrár fyrir landsmót að skýrast, skráningu gæðinga er að ljúka og stöðulistar að verða klárir. Það er algjör veisla framundan hvað varðar hestakost, skemmtun, hátíðahöld og ekki síst verður mótið hressilegt mannamót eins og hestamanna er von og vísa. Fáksarar og Sprettarar bjóða alla velkomna á landsmót í Reykjavík.“
Allar niðurstöður Reykjavíkurmeistaramóts má nálgast með því að Smella hér og í HorseDay appinu góða.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH