Hulda og Sveigur sigruðu slaktaumatöltið – video
Eftir æsispennandi keppni í slaktaumatölti sigruðu Hulda Gústafsdóttir, Árbakki/Norður-Götur, á Sveig frá Varmadal með einkunnina 8,13. Hulda og Sveigur voru í 5. sæti eftir forkeppni.
Í öðru sæti var Jakob S Sigurðsson, Top Reiter/Ármót/66°Norður, á Al frá Lundum með einkunnina 8,00 og í því þriðja varð Hinrik Bragason, Árbakki/Norður-Götur, á Glym frá Flekkudal með einkunnina 7,96.
Aðeins eru 5 dagar síðan Hinrik Bragason og Sveigur frá Varmadal urðu í fjórða sæti ísmótsins „Þeir allra sterkustu“
Hér eru úrslit keppninnar:
A-úrslit
1 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal 8,13
2 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Alur frá Lundum 8,00
3 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Glymur frá Flekkudal 7,96
4 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Jarl frá Mið-Fossum 7,88
5 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Grýta frá Garðabæ 7,67
6 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga Vígar frá Skarði 7,42
B-úrslit
6 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga Vígar frá Skarði 7,50
7 – 8 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Hrafndynur frá Hákoti 7,46
7 – 8 Elvar Þormarsson Spónn.is Njála frá Velli 7,46
9 Bergur Jónsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Týr frá Litla-Dal 7,29
10 Sveinn Ragnarsson Árbakki / Norður-Götur Ögri frá Baldurshaga 7,13
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH