Stöðulistar íþróttagreina fyrir Landsmót
Hver knapi ber ábyrgð á sinni skráningu út frá stöðulista sem birtur verður á heimasíðu Landsmóts og öllum helstu vefmiðlum 21. júní. Knapar eru beðnir um að fylgjast vel með og bregðast skjótt við skráningu. Hver knapi ber ábyrgð á því að skráningargjöld séu greidd og mikilvægt er að senda kvittun á [email protected] svo skráningin sé gild. Skráningargjaldið er kr. 15.000.
- 30 hæstu einkunnir í tölti T1
- 20 bestu tímarnir í 100m skeiði P2
- 14 bestu tímarnir í 150m skeiði P3
- 14 bestu tímarnir í 250m skeiði P1
Auk þeirra sem eru inni á stöðulistum, eiga heimsmeistarar í hverri grein boðssæti frátekið og taka þeir ekki sæti frá öðrum á listanum. Þau Sara Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Margrét Snorradóttir, Elvar Þormarsson, Jón Ársæll Bergmann, Herdís Björg Jóhannsdóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Benedikt Ólafsson eiga því boð á LM.
16 ára aldurstakmark (árg. 2008) er í töltinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH