Þær eru að koma
22×6 mm. afturfótaskeifur eru væntanlegar á markað á næstu dögum.
Skeifuframleiðandinn Kerckhaert hefur lagt nótt við dag við að koma á markaðinn, 22 mm. afturfótaskeifur, sem kynbótaknapar eru margir að bíða eftir undir hross sem til að stendur að sýna.
Framfóta- og afturfótaskeifur verða að vera jafn breiðar. Í einhvern tíma hefur verið boðið upp á 22×8 mm. framfótaskeifur en 6mm afturfótaskeifur hafa eingöngu verið til 20 mm. breiðar.
Nú hefur Kerckhaert bætt úr þessu og er von á nýju afturfótaskeifunum fyrir mánaðarmót.
Þær verða seldar í öllum helstu hestavöruverslununum landsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH