Fundir um velferð
Landssamband hestamannafélaga, Félag hrossabænda og Félag tamningamanna boða til funda um velferð keppnis- og kynbótahrossa.
Kynntar verða niðurstöður ítarlegra tölfræðigreininga á gögnum frá heilbrigðisskoðun keppnis- og kynbótahrossa árið 2012. Þá verða áherslur í nýjum dýravelferðarlögum kynntar.
Frummælendur á fundunum verða:
- Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir
- Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma
- Þorvaldur Kristjánsson kennari og kynbótadómari
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
- Hliðskjálf félagsheimili Sleipnis á Selfossi miðvikudaginn 9. Apríl kl. 20:00
- Félagsheimili Fáks Víðidal fimmtudaginn 10. Apríl kl. 20:00
Fundirnir hefjast kl: 20:00 og eru hestamenn og velunnarar íslenska hestsins hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um þetta mikilvæga málefni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH