Stökk og brokkkappreiðar í Vík

  • 3. júní 2015
  • Fréttir
Hestaþing Sindra fer fram dagana 12. - 13. júní.

Hestaþing Sindra fer fram í Vík dagana 12. – 13. júní samkvæmt tilkynningu frá mótanefnd hestamannafélagsins Sindra.

„Föstudagur: Kappreiðar Sindra. Boðið er uppá 100m fljótandi skeið, 150m – og 250m skeið, 300m brokk og 300m stökk. Skráningargjöld eru aðeins 500 kr á hest og peningaverðlaun í boði fyrir sigur. Keppnisgrein mun þó falla niður ef þátttakendur verða færri en 3. Skráningu á kappreiðar lýkur fimmtudag 11. júní. Ath það verður ekki tímatökubúnaður á staðnum.

Laugardagur: Hestaþing Sindra. Keppt verður í: pollar, börn, unglingar, ungmenni, A – og B – flokkur gæðinga. Skráningargjöld í alla flokka eru 3500 kr nema barna- og unglinga-, þau greiða 500 kr og pollar greiða ekkert.

Skráningu á Hestaþing lýkur þriðjudag 9. júní. Um kvöldið verður svo Ursustöltið þar sem keppt er í T1 og sigurvegarinn hlýtur að launum 100.000 krónur! Skráningargjöld eru 3500 kr og lýkur skráningu miðvikudag 10. júní

Skráning í allar greinar fer fram hér: http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Ath að þegar á að skrá í pollaflokk er valin keppnisgrein Annað þar sem ekki er boðið uppá pollaflokk í mótafeng. Skráning er ekki tekin gild nema staðfesting á greiðslu berist á [email protected]. Setja skal pöntunarnúmerið sem tilvísun

Ef einhver vandræði eru með skráningu sendið tölvupóst á [email protected].“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link