Gæðingshryssur

  • 23. desember 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
5 vetra hryssur.

Flokkur fimm vetra hryssna var næst stærsti flokkurinn, alls 295, en það gerir 16% af öllum sýndum hrossum og tæpur fjórðungur af sýndum hryssum. Orri frá Þúfu á tvo fulltrúa í hópi efstu tíu, eða þær Söru frá Stóra-Vatnsskarði og Þórdísi frá Prestsbæ. Efsta hryssan er frá Þýskalandi en það er Hrönn vom Kronshof. Hrönn stóð efst í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Herning þar sem hún hlaut jafnframt sinn hæsta dóm. Hrönn hlaut fyrir hæfileika 8,69 og fyrir sköpulag 8,28. Frauke Schenzel sýndi Hrönn en hún hlaut 9,0 fyrir tölt og brokk og 8,5 fyrir rest.

Önnur er Hrafna frá Hrafnkelsstöðum I en Daníel Jónsson sýndi Hröfnu. Hrafna hlaut fyrir hæfileika 8,68 og fyrir sköpulag 8,18. Fyrir tölt, skeið og fegurð í reið hlaut hún 9,0 sem og bak og lend og samræmi. Þriðja er Ríkey frá Flekkudal en hún var fulltrúi Íslands á heimsmeistaramótinu þar sem hún endaði í öðru sæti. Ríkey fór þar í sinn hæsta dóm en hún hlaut 8,35 fyrir hæfileika og 8,53 fyrir sköpulag. Hún hlaut 9,0 fyrir skeið og vilja og geðslag. 

5 vetra hryssur
8.52      Hrönn vom Kronshof        Ögri Hvolsvelli   Veipa Kronshof Þýskaland
8.48      Hrafna frá Hrafnkelsstöðum 1          Hrafnar Auðsholtshjáleigu Skyggna Hrafnkelsstöðum 1          Ísland
8.42      Ríkey frá Flekkudal          Glymur Flekkudal           Björk Vindási     Ísland
8.40      Sara frá Stóra-Vatnsskarði  Orri Þúfu í Landeyjum      Lukka Stóra-Vatnsskarði   Ísland
8.40      Sorg fra Slippen  Garri Reykjavík   Héla Kílhrauni    Danmörk
8.38      Brá frá Káragerði  Þóroddur Þóroddsstöðum  Hátíð Káragerði   Ísland
8.37      Snilld frá Syðri-Völlum    Kraftur Efri-Þverá Rakel Sigmundarstöðum   Ísland
8.35      Dagstjarna fran Knubbo     Prins Knutshyttan            Dögun Knubbo   Svíþjóð
8.34      Þórdís   Prestsbæ            Orri Þúfu í Landeyjum      Þoka Hólum       Ísland
8.33      Kvika frá Grenjum           Kvistur Skagaströnd         Kleópatra K Seljabrekku   Ísland

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link