Gæðinga- og úrtökumót hjá Skugga og Glað
Hestamannafélagið Skuggi í samvinnu við Arionbanka heldur gæðingamót sitt á velli félagsins við Vindás laugardaginn 4. Júní nk. Mótið er jafnfram úrtaka fyrir Landsmót fyrir hestamannafélögin Skugga og Glað.
Mótið hefst kl. 10 með undankeppni í eftirfarandi flokkum og röð:
Að afloknu hádegishléi hefjast úrslit og verða þau riðin í sömu röð og undankeppnin. Verðlaun verða veitt fyrir 5 efstu sæti og glæsilegasta hest mótsins.
Kappreiðar fara fram að gæðingakeppni lokinni, þá verður keppt í 200 m. Stökki og brokki og 150 m. Skeiði. Skráning fer fram í félagsheimili á meðan á úrslitum gæðingakeppni stendur.
Skráningar á gæðingamót skulu berast í netfangið [email protected] fyrir kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 2. Júní. Þar þarf að koma fram flokkur, kennitala knapa og IS tala hests. Hestar þurfa að vera í eigu félagmanns Skugga til að vera gjaldgengir til leiks skv. reglum LH. Ráslistar munu birtast á heimasíðu Skugga á fimmtudagskvöld. Upplýsingar gefur Reynir í s. 860-9014.
Þetta kemur í fréttatilkynningu frá mótanefnd Skugga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH