Landsmót 2024 Börnin ríða á vaðið

  • 1. júlí 2024
  • Fréttir

Linda Guðbjörg Friðriksdóttir og Sjóður frá Kirkjubæ eru efst á stöðulista inn á mótið en þau keppa fyrir hestamannafélagið Geysi. Mynd: Marta Gunnarsdóttir

Í dag hefst dagskrá á aðalvellinum kl. 08:30 á keppni í barnaflokki.

Þær Kristín Rut Jónsdóttir á Flugu frá Garðabæ, Elísabet Benediktsdóttir á Östru frá Köldukinn 2 og Karitas Fjeldsted á Polka frá Ósi eru fyrstar í braut.

Ráslistar og lifandi niðurstöður er hægt að sjá í HorseDay smáforritinu.

Keppni í banaflokki er ávallt skemmtileg og hafa knapar lagt mikið á sig við undirbúning mótsins. Mörg þeirra að keppa á sínu fyrsta Landsmóti og spennan og eftirvæntingin því mikil.

Í barnaflokki er 91 barn skráð til leiks en af þessum 91 munu einungis 30 komast upp í milliriðla.

Aðalvöllur
08:30 Barnaflokkur forkeppni holl 1-15
10:15 Hlé
10:30 Barnaflokkur forkeppni holl 16-31
12:30 Matarhlé
13:30 B-flokkur forkeppni holl 1-19
15:35 Hlé
15:55 B-flokkur forkeppni holl 20-38
18:00 Matarhlé
18:40 B-flokkur ungmenna forkeppni holl 1-15
20:20 Hlé
20:30 B-flokkur ungmenna forkeppni holl 16-30
22:10 Dagskrárlok á aðalvelli

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link