Landsmót 2024 „Reyna að para rétt saman en síðan er þetta alltaf happadrætti“

  • 3. júlí 2024
  • Fréttir
Viðtal við Maríönnu Gunnarsdóttur, hrossaræktanda í Árbæ

Maríanna Gunnarsdóttir er ein af þeim sem stödd er á Landsmót til að fylgja eftir hrossunum sínum ýmist í keppni eða kynbótasýningu. Hún ræktar hross kennd við Árbæ ásamt foreldrum sínum. Hestur úr hennar eigin ræktun, Seðill frá Árbæ, er þriðji í A-flokki eftir sérstaka forkeppni. Tumi frá Jarðbrú, hestur í hennar eigu, stendur efstur fyrir milliriðla í ungmennaflokki með knapa sínum Matthíasi Sigurðarsyni. Mamma hennar, Vigdís Þórarinsdóttir, ræktaði þær Kríu og Hamingju sem sýndar voru í fjögurra vetra flokki en Hamingja er efst sem stendur.

Kári hitti á Maríönnu hér á mótinu og er hægt að horfa á viðtalið við hana í spilaranum hér fyrir neðan.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link