Hefja þarf gæðingaskeiðið til vegs á ný
Landsmótið fer frábærlega af stað. Í gær hófst keppni í A flokki gæðinga. Þvílík veisla. Yfir eitt hundrað hross af öllu landinu öttu kappi á góðgangtegundunum, brokki, tölti og skeiði. Þær voru margar geggjaðar skeiðsýningarnar. Við sáum fjaðrandi gæðinga skyrpa úr hófum. Við sáum það besta sem náttúruundrið, íslenski gæðingurinn hefur upp á að bjóða.
Fyrir margt löngu var hönnuð keppnisgrein sem átti að vera vettvangur tilþrifa íslenska gæðingsins, gæðingaskeið.
En því miður var sú keppnisgrein eyðilögð og þannig breytt að hún hentaði einhæfum skeiðhestum með góðri bremsutækni. „Gæðingaskeið“ er eftir breytingar orðið andheiti á þeirri keppni sem fram fer.
Í gær sáum við gæðingaskeið. Í gær sáum við að íslenski gæðingurinn getur svo sannarlega skeiðað. Í gær sáum við að það er ekki lítil skeiðgeta íslenska gæðingsins sem veldur því að hann mætir ekki í „gæðingaskeið“. Í gær sáum við svart á hvítu að ástæðan er önnur og tengist furðulegu regluverki sem þjónaði á sínum tíma einstaklingum sem þurftu að vinna gæðingaskeið á sínum einhæfu tæknilegu skeiðjálkum.
Til að íslenski gæðingurinn mæti aftur í gæðingaskeið þarf að sníða keppnisgreinina að honum og þeim eðliskostum sem verðmætastir eru. Bremsutækni frá hámarkshraða niður í 0 á 50 metrum er ekki einn þeirra kosta. Fet í stað góðgangtegunda í upphafi og við endi þjónar gæðingnum ekki heldur.
Gerum betur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH