Landsmót 2024 Þrjár tíur í flokki sex vetra stóðhesta

  • 3. júlí 2024
  • Fréttir

Hulinn frá Breiðstöðum, knapi Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Mynd: Kolla Gr.

Þrír stóðhestar hafa fengið 10 fyrir einstaka eiginleika í flokki sex vetra stóðhesta.

Hulinn frá Breiðstöðum hlaut 10 fyrir samstarfsvilja, Grímar frá Þúfum og Svarti-Skuggi frá Pulu hlutu báðir 10 fyrir fet.

Hulinn er undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Díönu frá Breiðstöðum. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,34 og fyrir hæfileika 8,75. Sýnandi er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir. Faðir Hulins, Kveikur hlaut tvisvar sinnum 10 fyrir samstarfsvilja í dómi og var í annað sinn einmitt á Landsmóti í Reykjavík árið 2018 en það var einmitt Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem sýndi hann.

Grímar er undan Sólon frá Þúfum og Grýlu frá Þúfum. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,41 og fyrir hæfileika 8,61 sem gerir 8,54 í aðaleinkunn. Þetta er í annað sinn sem Grímar fær 10 fyrir fet en hann fékk það einnig á sýningu í vor. Mette Mannseth sýndi hestinn en hún er jafnframt eigandi og ræktandi.

Svarti-Skuggi frá Pulu er undan Veg frá Kagaðarhóli og Sóldísi frá Pulu. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,60 og fyrir hæfileika 8,45 sem gerir í aðaleinkunn 8,51. Þetta er í annað sinn sem Svarti-Skyggi fær 10 fyrir fet en hann fékk hana einni á sýningu í vor. Jóhann Kristinn Ragnarsson sýndi hestinn en hann er jafnframt ræktandi og eigandi ásamt Theódóru Þorvaldsdóttur

Hér fyrir neðan eru dómar þeirra þriggja

IS2018157298 Hulinn frá Breiðstöðum
Örmerki: 352098100081832
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Ræktandi: Guðrún Astrid Elvarsdóttir
Eigandi: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Guðrún Astrid Elvarsdóttir, Hægri Krókur ehf
F.: IS2012188095 Kveikur frá Stangarlæk 1
Ff.: IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ
Fm.: IS2004288562 Raketta frá Kjarnholtum I
M.: IS2005257298 Díana frá Breiðstöðum
Mf.: IS1994184553 Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum
Mm.: IS1988257256 Zara frá Syðra-Skörðugili
Mál (cm): 140 – 128 – 133 – 62 – 140 – 37 – 46 – 42 – 6,4 – 29,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,4 – V.a.: 8,5
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 8,0 = 8,34
Hæfileikar: 9,5 – 9,5 – 5,0 – 9,0 – 9,5 – 10,0 – 9,5 – 8,5 = 8,75
Hægt tölt: 9,5

Aðaleinkunn: 8,61
Hæfileikar án skeiðs: 9,43
Aðaleinkunn án skeiðs: 9,05
Sýnandi: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Þjálfari:

IS2018158169 Grímar frá Þúfum
Örmerki: 352206000127277
Litur: 3300 Jarpur/botnu- einlitt
Ræktandi: Mette Camilla Moe Mannseth
Eigandi: Mette Camilla Moe Mannseth
F.: IS2013158161 Sólon frá Þúfum
Ff.: IS2005135936 Trymbill frá Stóra-Ási
Fm.: IS2003265020 Komma frá Hóli v/Dalvík
M.: IS2008258166 Grýla frá Þúfum
Mf.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
Mm.: IS1989236512 Lygna frá Stangarholti
Mál (cm): 145 – 131 – 140 – 67 – 142 – 38 – 47 – 44 – 6,4 – 30,5 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 9,0
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 9,0 = 8,41
Hæfileikar: 8,5 – 9,0 – 7,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 10,0 = 8,61
Hægt tölt: 8,5

Aðaleinkunn: 8,54
Hæfileikar án skeiðs: 8,81
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,67
Sýnandi: Mette Camilla Moe Mannseth
Þjálfari:

IS2018181604 Svarti-Skuggi frá Pulu
Örmerki: 352098100082226
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Ræktandi: Jóhann Kristinn Ragnarsson, Theódóra Þorvaldsdóttir
Eigandi: Jóhann Kristinn Ragnarsson, Theódóra Þorvaldsdóttir
F.: IS2010156418 Vegur frá Kagaðarhóli
Ff.: IS2004158629 Seiður frá Flugumýri II
Fm.: IS1993265645 Ópera frá Dvergsstöðum
M.: IS2011281603 Sóldís frá Pulu
Mf.: IS2002155490 Sædynur frá Múla
Mm.: IS1994256221 Gullsól frá Öxl 1
Mál (cm): 148 – 135 – 138 – 66 – 145 – 38 – 49 – 44 – 6,6 – 30,5 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 8,3
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 8,0 – 7,5 – 9,0 – 9,0 = 8,60
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 5,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 10,0 = 8,45
Hægt tölt: 8,5

Aðaleinkunn: 8,51
Hæfileikar án skeiðs: 9,08
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,91
Sýnandi: Jóhann Kristinn Ragnarsson
Þjálfari:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link