Védís og Ísak efst í ungmennaflokki
Védís Huld og Ísak Mynd: Freydís Bergsdóttir
Þá er forkeppni lokið í ungmennaflokki og var nokkuð um sviptingar á efstu sætum frá því í forkeppni enda bætast við tvær gangtegundir, fet og stökk.
Efst eftir milliriðla er Védís Huld Sigurðardóttir og Ísak frá Þjórsárbakka með 8,75 í einkunn. Önnur Guðný Dís Jónsdóttir og Hraunar frá Vorsabæ II með 8,66 í einkunn og Lilja Dögg Ágústsdóttir á Dögginni frá Eystra-Fróðholti með 8,61 í einkunn.
Efstir fyrir milliriðla var Matthías Sigurðsson á Tuma frá Jarðbrú en þeir áttu ekki góða sýningu á feti en náðu þó einkunn inn í B úrslit. Það sama var upp á teningnum hjá Jóni Ársæli Bergmann og Heið frá Eystra-Fróðholti en þeir voru þriðju eftir forkeppni. Það verður hart barist um A úrslita sæti í B úrslitum á laugardaginn
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr milliriðlum í ungmennaflokki
Milliriðill – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Védís Huld Sigurðardóttir Ísak frá Þjórsárbakka Sleipnir 8,75
2 Guðný Dís Jónsdóttir Hraunar frá Vorsabæ II Sprettur 8,66
3 Lilja Dögg Ágústsdóttir Döggin frá Eystra-Fróðholti Geysir 8,61
4 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti Fákur 8,59
5 Sigurður Baldur Ríkharðsson Loftur frá Traðarlandi Sprettur 8,54
6-7 Þorvaldur Logi Einarsson Saga frá Kálfsstöðum Jökull 8,51
6-7 Kristján Árni Birgisson Rökkvi frá Hólaborg Geysir 8,51
8 Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I Jökull 8,50
9 Anna Sager Sesar frá Rauðalæk Fákur 8,50
10 Glódís Líf Gunnarsdóttir Goði frá Ketilsstöðum Máni 8,50
11 Þórgunnur Þórarinsdóttir Jaki frá Skipanesi Skagfirðingur 8,49
12 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú Fákur 8,49
13 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kolgríma frá Morastöðum Hörður 8,47
14-15 Ólöf Bára Birgisdóttir Jarl frá Hrafnagili Skagfirðingur 8,47
14-15 Jón Ársæll Bergmann Heiður frá Eystra-Fróðholti Geysir 8,47
16-17 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Muninn frá Bergi Sprettur 8,45
16-17 Bil Guðröðardóttir Hryggur frá Hryggstekk Hringur 8,45
18 Sigurður Dagur Eyjólfsson Flugar frá Morastöðum Sörli 8,45
19 Herdís Björg Jóhannsdóttir Augasteinn frá Fákshólum Sprettur 8,42
20-21 Björg Ingólfsdóttir Straumur frá Eskifirði Skagfirðingur 8,41
20-21 Sigurður Steingrímsson Kolka frá Hvammi Geysir 8,41
22 Aníta Eik Kjartansdóttir Rökkurró frá Reykjavík Hörður 8,38
23 Hekla Rán Hannesdóttir Grímur frá Skógarási Sprettur 8,38
24 Sigrún Högna Tómasdóttir Rökkvi frá Rauðalæk Jökull 8,36
25 Unnsteinn Reynisson Glói frá Brjánsstöðum Sleipnir 8,28
26 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Jökull frá Rauðalæk Þytur 8,25
27 Sara Dís Snorradóttir Nökkvi frá Syðra-Skörðugili Sörli 8,17
28 Emilie Victoria Bönström Kostur frá Þúfu í Landeyjum Sprettur 7,79
29 Viktoría Vaka Guðmundsdóttir Díva frá Bakkakoti Geysir 7,27
30 Hanna Regína Einarsdóttir Míka frá Langabarði Fákur 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH