Landsmót 2024 Konráð með tvennu í kappreiðunum

  • 5. júlí 2024
  • Fréttir
Niðurstöður úr kappreiðunum á Landsmóti 2024

Konráð Valur Sveinsson vann báðar greinarnar í kappreiðunum. Hann vann 250 m. skeiðið á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk með tímann 21,50 sek. og 150 m. skeiðið á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II með tímann 13,75 sek.

Í viðtali við Eiðfaxa Vor sagðist Konráð stefna á þrjá Landsmótstitla í skeiði og kemur í ljós á morgun, laugardagin kl. 19:00, hvort honum tekst ætlunarverkið en þá fer fram 100 m. skeið á aðalvellinum.

Í öðru sæti í 250 m. skeiðinu varð Sigursteinn Sumarliðason á Krókus frá Dalbæ með tímann 21,72 sek. og þriðji var Gústaf Ásgeir Hinriksson á Sjóð frá Þóreyjarnúpi með tímann 22,01 sek.

Í 150 m. skeiðinu varð annar Þórarinn Ragnarsson á Bínu frá Vatnsholti með tímann 14,19 sek og þriðji varð Daníel Gunnarsson á Skálmöld frá Torfunesi með tímann 14,21 sek.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr kappreiðunum

Skeið 250m P1
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Fákur 21,50
2 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ Sleipnir 21,72
3 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi Geysir 22,01
4 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I Fákur 22,05
5 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi Geysir 22,29
6 Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ Sörli 22,39
7 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási Fákur 22,72
8 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Geysir 22,77
9 Ævar Örn Guðjónsson Vigdís frá Eystri-Hól Sprettur 23,06
10-13 Þorgils Kári Sigurðsson Faldur frá Fellsási Sleipnir 0,00
10-13 Daníel Gunnarsson Smári frá Sauðanesi Skagfirðingur 0,00
10-13 Jóhann Kristinn Ragnarsson Gnýr frá Brekku Sprettur 0,00
10-13 Matthías Sigurðsson Magnea frá Staðartungu Fákur 0,00

Skeið 150m P3
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II Fákur 13,75
2 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti Jökull 14,19
3 Daníel Gunnarsson Skálmöld frá Torfunesi Skagfirðingur 14,21
4 Eyrún Ýr Pálsdóttir Sigurrós frá Gauksmýri Fákur 14,37
5 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Geysir 14,50
6 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Sprettur 14,54
7 Sigurður Heiðar Birgisson Hrina frá Hólum Skagfirðingur 14,55
8 Helgi Gíslason Hörpurós frá Helgatúni Fákur 14,59
9 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II Fákur 14,66
10 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1 Sörli 14,70
11 Árni Björn Pálsson Þokki frá Varmalandi Fákur 15,14
12 Ísólfur Ólafsson Ögrunn frá Leirulæk Borgfirðingur 15,66
13-14 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli Þytur 0,00
13-14 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Óskastjarna frá Fitjum Fákur 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar