Þrígangsmót á föstudagskvöld
„Þrígangsmót á föstudagskvöldið í boði Útfararstofu Svafars og Hermanns.
Annað mótið í mótaröð Fáks, Kerckhaerts, Útfararstofu Svafars og Hermanns og Kökuhornsins verður nk. föstudagskvöld. Keppt verður í þrígangi og að venju verður riðið upp á vinstri hönd og riðið eftir þul. Keppt er í tveimur aldursflokkur og svo tveimur styrkleikaflokkum innan hvers flokks. Ákveðið hefur verið að meira vönu flokkarnir (í báðum aldursflokkum) ríða fegurðartölt, brokk og stökk en minna vönu knaparnir í báðum flokkum ríða fet í staðin fyrir stökk þannig að þeir ríða fegurðartölt, fet og brokk.
17 ára og yngri, tveir flokkar, minna keppnisvanir og keppnisvanir.
18 ára og eldri (þeir sem verða 18 á árinu), tveir flokkar, minna keppnisvanir og meira keppnisvanir.
Skráning á fimmtudaginn kl. 18:30 – 19:00 í Reiðhöllinni.
Skráningargjald kr. 1.500 fyrir 17 ára og eldri og 500 kr. fyrir 16 ára og yngri.
Mótið hefst kl. 19:30.
Allir að mæta, taka þátt eða hvetja knapa áfram, veitingasala á staðnum.
Þökkum Útfararstofu Svafars og Hermanns stuðninginn,“ segir í fréttatilkynningu frá mótanefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH