Ræktunarsýning á Flúðum á föstudagskvöld
Á aðalfundi Hrossaræktarfélags Hrunamanna sem haldinn var 10. apríl voru að venju veitt verðlaun fyrir hæst dæmda kynbótahross sýnt á sl. ári í eigu félagsmanns.
Að þessu sinni var það hryssan Ísafold í eigu Jaðarsbúsins sem stóð efst með 8,30 í aðaleinkunn. Fjórar hryssur í eigu félagsmanna hlutu 1. verðlaun. Félagið hefur starfað í 99 ár og er t.d. til fyrsta fundargerðabókin. Áformað er að minnast 100 ára afmælisins næsta ár á veglegan hátt.
Ræktunarbúsýning á vegum félagsins verður haldin í reiðhöllinni á Flúðum næstkomandi föstudagskvöld og er vonast eftir góðri þátttöku. Stóðhesturinn Sveinn Hervar frá Þúfu verður í Hrunagirðingu í sumar.
Núverandi stjórn skipa Grímur Guðmundsson Ásatúni form. Berglind Ágústsdóttir, Efra – Langholti ritari og Sigurður Jónsson Skollagróf gjaldkeri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH