Kynbótasýning hrossa á Hvammstanga

  • 17. maí 2011
  • Fréttir
Kynbótasýning hrossa á Hvammstanga

Kynbótasýning hrossa hefst á Hvammstanga miðvikudaginn 25. maí. 

„Dómar verða miðvikudag og fimmtudag og yfirlitssýning á föstudegi. Þetta getur þó breyst ef skráningar verða ekki í samræmi við áætlanir.

Best er að senda skráningar á tölvupósti – [email protected]  – en einnig má hringja í síma 451 -2602. Síðasti skráningardagur er föstudagur 20. maí.

Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um hrossið, fullnaðardómur eða bara bygging eða hæfileikar, nafn og kennitala sýnanda, nafn og kennitala þess sem greiðir reikning og óskir um tíma ef einhverjar eru.

Gjald er 15.000 fyrir fullnaðardóm en 10.500 ef bara annað hvort bygging eða hæfileikar. Greiðist inn á banka 307-26-2650 (kt 471101-2650) samhliða skráningu og senda kvittun á [email protected] með upplýsingum fyrir hvaða hross er verið að greiða. Kynnið ykkur vel reglur um járningar, spattmyndir, dna ofl.

Nánari upplýsingar og tímasetningar á www.rhs.is þegar nær dregur,“ segir í tilkynningu frá Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link