Feykir frá Háholti efstur í flokki 5 vetra stóðhesta-
Íslendingar eru að standa sig vel á kynbótasýningum hér í St. Radegund. Í morgun sýndi Sigurður Óli Kristinsson Feyki frá Háholti sem stendur nú efstur í flokki 5 vetra stóðhesta eftir fyrri umferð hæfileikadóma. Feykir hlaut 8,19 fyrir hæfileika og er því með 8,38 í aðaleinkunn.
Annar er hinn norski Tígull frá Kleiva með 8,28 í aðaleinkunn og þriðji er Ísleifur vom Lipperthof frá Þýskalandi með 8,13 í aðaleinkunn.
Dómur Feykis frá Háholti
Sköpulag:
Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 9
Bak og lend 8
Samræmi 9
Fótagerð 8.5
Réttleiki 8
Hófar 9
Prúðleiki 8
Sköpulag 8.66
Hæfileikar:
Tölt 8.5
Brokk 8
Skeið 7
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 8.5
Fegurð í reið 8.5
Fet 8.5
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8
Hæfileikar 8.19
Aðaleinkunn 8.38
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH