Höfðinginn Markús í Húsdýragarðinum

  • 1. febrúar 2013
  • Fréttir
Höfðinginn Markús í Húsdýragarðinum

„Stóðhesturinn Markús frá Langholtsparti er kominn til vetrardvalar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.  Markús er á 20. vetri og er brúnn á lit og faxprúður.  Prúðleiki á faxi og tagli skilaði Markúsi 9,5 í einkunn í kynbótadómi í Reykjavík árið 2000.  Hann fékk einnig 9,5 fyrir vilja og geðslag.  Hann hlaut í meðaleinkunn fyrir hæfileika 8,61, fyrir sköpulag 7,99 og í aðaleinkunn 8,36. Á Landsmóti í Reykjavík sama ár stóðu Markús og Sigurbjörn Bárðarson uppi sem sigurvegarar í B-flokki gæðinga.  

Markús á 419 skráð afkvæmi samkvæmt “Worldfeng” ættbók íslenska hestsins (www.worldfengur.com). Hann var sýndur ásamt afkvæmum á Landsmóti í Reykjavík 2012 og hlaut heiðursverðlaun og annað sæti.  

Opið er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum alla daga frá 10 til 17,“segir í fréttatilkynningu þaðan

 

 

 

 

 

.  

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link