Haustfundur HROSSVEST
Einhamar var valið Hrossaræktarbú Vesturlands í fyrra. Á myndinni er stóðhestur úr þeirra ræktun, Daggar frá Einhamri.
Haustfundur HROSSVEST verður haldinn sunnudaginn 23. nóvember n.k. kl. 14 á Hótelinu í Borgarnesi. Á haustfundinum verður tilnefnt hrossaræktarbú Vesturlands, veitt verða verðlaun fyrir hæstu hrossin í hverjum flokki svo og útnefndir einstaklingar til heiðursmerkis HROSSVEST.
En hér er um að ræða einstaklinga sem hafa lagt sitt af mörkum til félags- og ræktunarstarfs í þágu hestamennskunnar á Vesturlandi. Auk þessa verður gestur fundarins Guðlaugur Antonsson, fyrrum hrossaræktarráðunautur, sem nú er starfsmaður MATÍS. Hann mun koma og fara yfir áherslur í starfi sínu á nýjum vettvangi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH