Norðurlandamót Ragnar Snær keppir til A-úrslita í tölti

  • 9. ágúst 2024
  • Fréttir
Forkeppni í tölti ungmenna

Í dag fer fram annar keppnisdagurinn á Noðurlandamótinu í Herning. Mikil rigning gekk þar yfir nú í morgun og þar er töluverður vindur. Samkvæmt veðurspá á að stytta upp eftir því sem á daginn líður og gera blíðu um helgina.

Fyrsta keppnisgrein dagsins var Tölt T1 ungmenna, 18 keppendur tóku þátt í forkeppninni og þar af  þrír landsliðsmenn Íslands þau Guðný Dís Jónsdóttir, Ragnar Snær Viðarsson og Selma Leifsdóttir.

Ragnar Snær Viðarsson keppti á Gimsteini frá Íbíshóli og tryggði sér annað sætið og keppnisrétt í A-úrslitum með einkunnina 6,87. Gimsteinn er stóðhestur undan Óskasteini frá Íbishóli og Ljósbrá frá Hólabaki.

Guðný Dís var með fyrstu knöpum í braut á Kristali frá Jaðri en hlaut hún í einkunn 5,40 og náði hún ekki til úrslita. Selma Leifsdóttir á Varúlfi frá Eylandi hlaut einkunnina 6,27 sem dugði henni ekki heldur til úrslita.

Efst að lokinni forkeppni er Amanda Frandsen Hryssunni Tinnu frá Litla-Landi með 7,10 í einkunn. Tinna er undan Hring frá Gunnarsstöðum og Vöku frá Tungu. Amanda keppir fyrir hönd Danmerkur.

Í þriðja sæti er Lára Gardarsdottir Hesselman á Álfi fra Knutshyttan með 6,77 í einkunn, Lára keppir fyrir hönd Svíþjóðar.

Forkeppni ungmenna í tölti T1

# Knapi Hestur Einkunn
1 Amanda Frandsen Tinna frá Litlalandi 7.10
2 Ragnar Snær Viðarsson Gimsteinn frá Íbishóli 6.87
3 Lára Gardarsdottir Hesselman Álfur från Knutshyttan 6.77
4.1 Maria Gjellestad Bosvik Tindur fra Jakobsgården 6.73
4.2 Rakel Brattalid Tindskard Sílas vom Forstwald 6.73
6.1 Miina Sarsama Freir fra Kaakkola 6.70
6.2 Palma Sandlau Jacobsen Sjóli von Teland 6.70
6.3 Luisa Husby Sem Bakkus fra Grundet Hus 6.70
9 Klara Solberg Sabrína frá Fornusöndum 6.50
10 Lilly Björsell Börkur fra Kleiva 6.43
11.1 Thea Hansen Varða frá Feti 6.37
11.2 Sekine Brewster Meistari från Lindarbakka 6.37
13 Julie Thorsbye Andersen Garpur frá Kjarri 6.27
13 Selma Leifsdóttir Varúlfur frá Eylandi 6.27
15 Hedda Moldestad Blökk frá Skjálg 6.13
16 Herman Gundersen Vésteinn frá Bakkakoti 5.93
17 Amelie Segerström Kopar frá Sunnuhvoli 5.83
18 Guðný Dís Jónsdóttir Kristall frá Jaðri 5.40

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link