Herdís Björg deilir efsta sætinu í slaktaumatöltinu
Herdís Björg og Elskamin von Erkshausen Mynd: Anja Mogensen.
Forkeppni í slaktaumatölti í ungmennaflokki er lokið á Norðurlandamótinu en það er grenjandi rigning á svæðinu. 12 keppendur tóku þátt og áttu íslendingar tvö fulltrúa þær Herdísi Björgu Jóhannsdóttur og Huldu Maríu Sveinbjörnsdóttur.
Herdís Björg á Elskamin von Erkshausen deilir efsta sætinu með Lilly Björsell á Börk fra Kleiva en þær hlutu báðar 7,13 í einkunn. Þær Hulda María og Hetja frá Árbæ stóðu sig líka vel en þær lentu hins vegar í smá brasi á slaka taumnum sem hafði áhrif á einkunn þeirra. Þær enduðu með 6,10 í einkunn og í níunda sæti.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr forkeppni í slaktaumatölti í ungmennaflokki.
Forkeppni – Slaktaumatölt T2 – Niðurstöður
| 1.1 | Lilly Björsell | Börkur fra Kleiva | 7.13 |
| 1.2 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Elskamin von Erkshausen | 7.13 |
| 3 | Emilie Saaugaard-Haaning | Vaka fra Nr. Tolstrup | 7.03 |
| 4 | Saga Berggren | Kolfinnur från Margaretehof | 6.97 |
| 5 | Lowa Walfridsson | Seifur från Skälleryd | 6.90 |
| 6 | Tekla Petersson | Vatnadís från Noastallet | 6.57 |
| 7 | Olivia Kasperczyk | Tengill frá Hofi | 6.43 |
| 8 | Amelie Segerström | Kopar frá Sunnuhvoli | 6.37 |
| 9 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Hetja frá Árbæ | 6.10 |
| 10 | Elma Laksafoss | Hvinur frá Árbæjarhjáleigu II | 6.07 |
| 11 | Mina Fidje Hansen | Maríus frá Húsavík | 6.03 |
| 12 | Maren Brandsgård Skaug | Aþena fra Skogly | 4.83 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH