Guðmundur og Draumur með besta tímann
Guðmundur Einarsson og Draumur från Tängmark í gæðingaskeiðinu í gær þar sem þeir enduðu í 2. sæti Mynd: Anja Mogensen
Fyrri umferð í 250 m. skeiðinu er lokið en seinni umferðin fer fram á morgun, laugardag. Eftir fyrsta sprett höfðu aðeins sjö af 19 pörum náð tíma en eftir tvö spretti eru allir með tíma fyrir utan sex, þ.á.m. Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson á Blikku frá Þóroddsstöðum en það er vonandi að þau nái tíma á morgun en Blikka getur verið öskufljót.
Guðmundur Einarsson og Draumur från Tängmark náðu besta tímanum í dag eða 23,31 sek. Með annan besta tíma dagsins er ungmennið Freja Løvgreen á Fjölva fra Hedegaard en þau fóru 250 metrana á 23,46 sek.
Enginn fullorðinn keppti fyrir hönd Íslands en tveir fulltrúar voru í ungmennaflokk. Ragnar Bjarki og Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir. Hún og Sefja frá Kambi eru sem stendur með fjórða besta tímann í ungmennaflokki.
250 m. skeið – Fyrri umferð – Fullorðinsflokkur
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
|---|---|---|---|
| 1 | Gudmundur Einarsson | Draumur från Tängmark | 23,31″ |
| 2 | Fillippa Helltén | Óðinn from Inchree | 23,56″ |
| 3 | Veronica Høgsveen Våland | Gáski frá Vindási | 23,93″ |
| 4 | Daniel Ingi Smarason | Hrafn frá Hestasýn | 24,38″ |
| 5 | Sigurður Vignir Matthíasson | Júlía från Agersta | 24,71″ |
| 6 | Wictoria Gren | Kjarval fra Søtofte | 25,45″ |
| 7 | Charlotte Cook | Duld frá Ytra-Dalsgerði | 0,00″ |
| 7 | Natalie Fischer | Ímnir fra Egeskov | 0,00″ |
250 m. skeið – Fyrri umferð – Ungmennaflokkur
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
|---|---|---|---|
| 1 | Freja Løvgreen | Fjölvi fra Hedegaard | 23,46″ |
| 2 | Alicia Palm | Ljúfa från Ekeholm | 24,03″ |
| 3 | Lill Kirsten Gilja | Loki fra Tyse | 25,25″ |
| 4 | Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir | Sefja frá Kambi | 27,14″ |
| 5 | Veera Niemi | Hekla fra Víðarbrekku | 0,00″ |
| 5 | Gerda-Eerika Viinanen | Svala frá Minni-Borg | 0,00″ |
| 5 | Tova Ivarsson | Tinna från Raudhetta gård | 0,00″ |
| 5 | Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson | Blikka frá Þóroddsstöðum | 0,00″ |
250 m. skeið – Fyrri umferð – Unglingaflokkur
| Sæti. | Knapi | Hross | Tími |
|---|---|---|---|
| 1 | Summer Sandlau Jacobsen | Vakur fra Gultentorp | 25,68″ |
| 2 | Sara Gardarsdottir Hesselman | Herkúles från Knubbo | 25,76″ |
| 3 | Olivia Agerhill | Yssa från Agersta | 28,39″ |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH