Norðurlandamót Vaki frá Auðsholtshjáleigu og Alberte í A-úrslit

  • 10. ágúst 2024
  • Fréttir

Vaki og Alberte Smith Ljósmynd: Anja Mogensen

B-úrslit í ungmenna- og A-flokki

Tvö B-úrslit í gæðingakeppni fóru fram nú rétt í þessu í Herning. Annars vegar A-flokki og hinsvegar ungmennaflokki.

Keppni í A-flokki var jöfn og spennandi og munaði ekki miklu á efstu hestum, þrír hestar komust ekki  í gegnum skoðun að keppni lokinni sem setti strik í reikninginn, því þar á meðal voru tveir efstu hestarnir.

Sigurvegari er Vaki frá Auðsholtshjáleigu sýndur af Alberte Smith, hlaut hann 8,653 í einkunn. Annar varð Skutull frá Hafsteinsstöðum og Jón Bjarni Smárason, sem keppa fyrir hönd Íslands, með 8,611 í einkunn. Stóðu þeir sig vel í sterkri keppni.

í ungmennaflokki var það Kathrine Eskesen og Hrókur frá Garðshorni sem sigruðu keppinauta sína og áunnu sér keppnisrétt í A-úrslitum.

B-úrslit í A-flokki

# Knapi Hestur Einkunn
1 Alberte Smith Vaki frá Auðsholtshjáleigu 8,653
2 Jón Bjarni Smárason Skutull frá Hafsteinsstöðum 8,611
3 Laura Nyström Gilda fra Stenkullagård 8,578
4 Katie Sundin Brumpton Kolka från Fögruhlíð 8,540
5 Desirée Alameri Nikulás fra Guldbæk 8,480
6 Berglind Gudmundsdottir Björn frá Svignaskarði 8,656*
7 Johanna Asplund Boði från Åleby 8,647*
8 Arnór Dan Kristinsson Spaði frá Skarði 8,416*

 

*Hlutu ekki einkunn að skoðun lokinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link