Blásið í skeiðlúðra
Frá Skeiðleikum á Selfossi
Skeiðfélagið lætur ekki sitt eftir liggja og boðar til Skeiðleika Líflands og Eques á Brávöllum á Selfoss næstkomandi miðvikudagskvöld þann 14.ágúst.
Að því tilefni er einnig vert að minna á fyrirlestur með Dr.Þorvaldi Árnasyni, uppbygging afrekshrossa, í Hlíðskjálf á Selfossi annað kvöld, mánudaginn 13.águst, klukkan 20:00. Allir velkomnir og frítt inn, en nánar verður greint frá honum hér á vef Eiðfaxa á morgun.
Skráning á Skeiðleikanna er í fullum gangi og fer fram með hefðbundnum hætti í gegnum Sportfeng.
Styrktaraðilar skeiðleikanna – Eques og Lífland styrkja um alla verðlaunagripi auk þess að stigahæsti knapi ársins hlýtur fra Líflandi 100.000 króna úttekt í versluninni.
Þá fær stigahæsti knapi ársins einnig til varðveislu í eitt ár farandgripinn Öderinn sem Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir gáfu til minningar um Einar Öder Magnússon.
Skeiðleikarnir verða með hefbundnu sniði þar sem byrjað verður á 250 m skeiði og endað á 100 m skeiði
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH