Artemisia Bertus efst eftir forkeppni
Forkeppni fyrsta móts Meistaradeildarinnar er nú nýlokið.
Meistaradeildin var sett kl. 19 þegar knapar og lið voru kynnt til leiks ásamt dómurum mótaraðarinnar.
Áður en keppni hófst minntist Trausti Þór Guðmundsson tamningameistarans Reynis Aðalsteinssonar með fallegum orðum og áhorfendur vottuðu virðingu sína með einnar mínútu þögn.
Að lokinni forkeppni er liðsmaður Hrímnis Artemisia Bertus efst en hún hlaut 7,33 í einkunn fyrir mjúka og fallega sýningu á Óskari frá Blesastöðum 1A.
Annar er liðsmaður Top Reiter/Ármóts, Þorvaldur Árni Þorvaldsson efstur en hann hlaut 7,27 í einkunn. Hann situr stóðhestinn Segul frá Flugumýri II. Segull þessi fór fyrir kynbótadóm í vor og hlaut þá fjórar níur, fyrir hægt tölt, brokk, fet og fegurð í reið og einkunnina 9,5 fyrir tölt.
Kempurnar Hulda Gústafsdóttir og Sveigur frá Varmadal eru þriðju eftir örugga sýningu og sigurvegari síðasta árs, Sigurður Sigurðarson og Loki frá Selfossi eru fjórðu.
Guðmundur Björgvinsson, Ólafur Ásgeirsson og Hinrik Bragason eru jafnir með 7,03 og horfir því í hörku B-úrslitakeppni, en ásamt þeim munu Viðar Ingólfsson og Teitur Árnason mæta til leiks.
Sýning afmælisbarns dagsins, Didda Bárðar og Penna frá Glæsibæ dugði hins vegar ekki í úrslit og laut þar m.a. í lægra haldi fyrir dóttur sinni Sylvíu Sigurbjörnsdóttur sem þreytti frumraun sína í Meistaradeildinni með sóma, hlaut 6,80 í einkunn en hún rétt missti af sæti í B-úrslitum.
Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnanesi brást eilítið bogalistinn þegar þeir ætluðu að sýna stökk á meðan John Kristinn Sigurjónsson gerði ógilda sýningu því hann reið hálfum hring of langt á feti eftir annars fallega reið á Indíu frá Álfhólum.
Hörður Hákonarson yfirdómari er ánægður með samræmi milli dóma, sem var 0,47. Hann sagði sýningar keppenda yfir höfuð góðar, margir hestar væru með glæsilegar sýningar miðað við árstíma.
Staðan eins og hún er núna:
- Artemisia Bertus Hrímnir Óskar frá Blesastöðum 1A 7,33
- Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Segull frá Flugumýri II 7,27
- Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal 7,23
- Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Asi frá Lundum II 7,20
- Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi 7,13
- Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Hugleikur frá Galtanesi 7,03
- Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Ketill frá Kvistum 7,03
- Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Glaðdís frá Kjarnholtum I 7,03
- Viðar Ingólfsson Hrímnir Vornótt frá Hólabrekku 7,00
- Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Hængur frá Hæl 6,93
- Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Þórir frá Hólum 6,80
- Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II 6,80
- Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Klerkur frá Bjarnanesi 6,70
- Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Penni frá Glæsibæ 6,60
- Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Þokkadís frá Efra-Seli 6,53
- Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Sóllilja frá Álfhólum 6,50
- Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Kall frá Dalvík 6,50
- Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Glefsa frá Auðsholtshjáleigu 6,30
- Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum 6,30
- Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Alfa frá Blesastöðum 6,30
- John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Indía frá Álfhólum xx
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH