Gæðingadómarar athugið

  • 10. mars 2011
  • Fréttir
Gæðingadómarar athugið

Fræðslunefnd Gæðingadómarafélags Íslands sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu í tengslum við upprifjunarnámskeið félagsins laugardaginn 12. mars nk.

„Frestur hefur verið gefin til föstudagsins 11. mars með skil á dæmdum CD diskum. Senda skal niðurstöður disksins á [email protected] í word eða excel skjali.
Námskeiðið byrjar stundvíslega kl. 9:30 í Háskólabíó sal 3, húsið opnar kl. 9 og er námskeiðsgjaldið 10.000 kr. og árgjaldið 1.500 kr. Boðið verður upp á kaffi og brauð í hádeginu.  
Þema námskeiðsins er vilji hestins, einnig mun Jóhann Ingi Gunnarsson vera með fyrirlestur sem fjallar um samkipti og siðareglur dómara.
Vonandi sjáum við sem flesta.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link