Örlagafundir í Borgarfirði
Frá Kaldármelum, fjórðungsmótssvæði Vestlendinga.
Aðalfundir hestamannafélaganna Faxa í Borgarfirði og Skugga í Borgarnesi verða haldnir í kvöld. Þó ekki sameiginlega. Fyrir báðum fundunum liggur tillaga um sameiningu félaganna.
Í apríl fór fram póstkostning (bréflega) í báðum félögunum um hvort sameina ætti félögin. Meirihluti reyndist vera fyrir því á báðum vígstöðvum. Líklegt þykir því að sameining verði samþykkt í kvöld.
Forsaga málsins er sú að árið 1990 klauf hópur borgfirskra hestamanna sig út úr Faxa og stofnaði hestamannafélagið Skugga í Borgarnesi. Aðstæður hafa hins vegar breyst síðan og nú telja fleiri en færri að tímabært sé að borgfirskir hestamenn sameinist í einu félagi. Ekki eru þó allir því sammála og í Skugga þurfa 2/3 greiddra atkvæða að falla með tillögunni svo hún fá samþykki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH