Guðmar Hólm og Dagur Sigurðarson með bestu tíma ársins
Nú er öllum mótum lokið á Íslandi og því vert að kíkja á stöðulista ársins og hverjir hafa náð hæstu einkunnum í hringvallargreinum eða verið fljótastir í skeiðgreinum.
Keppendur í ungmenna- og unglingaflokki náðu frábærum árangri í 100 metra skeiði á yfirstöðnu keppnistímabili. Í ungmennaflokki á besta tíma ársins Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Alviðru frá Kagaðarhóli tími þeirra er 7,38 sekúndur settur á Íslandsmóti í Víðidalnum í Reykjavík,
Dagur Sigurðarson og Tromma frá Skúfslæk eiga bestan tíma unglinga sem þau settu á Suðurlandsmmóti yngri flokka á Hellu. Þar fóru þau á 7,34 sekúndum.
Stöðulistarnir eru birtir með fyrirvara um það að allir mótshaldarar hafa skilað inn niðurstöðum frá sínum mótum.
Ungmennaflokkur – 10 efstu
# | Knapi | Hross | Tími | Mót |
1 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | IS2012256419 Alviðra frá Kagaðarhóli | 7,38 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
2 | Kristján Árni Birgisson | IS2015281990 Krafla frá Syðri-Rauðalæk | 7,58 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
3 | Jón Ársæll Bergmann | IS2012157470 Rikki frá Stóru-Gröf ytri | 7,59 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
4 | Benedikt Ólafsson | IS2016201189 Vonardís frá Ólafshaga | 7,62 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
5 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | IS2013187836 Stanley frá Hlemmiskeiði 3 | 7,65 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
6 | Þórey Þula Helgadóttir | IS2007188370 Þótti frá Hvammi I | 7,70 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
7 | Sara Dís Snorradóttir | IS2014177747 Djarfur frá Litla-Hofi | 7,73 | IS2024GEY163 – Suðurlandsmót yngri flokka – Geysir |
8 | Anna María Bjarnadóttir | IS2008257650 Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 8,10 | IS2024GEY163 – Suðurlandsmót yngri flokka – Geysir |
9 | Guðrún Lilja Rúnarsdóttir | IS2013125095 Kári frá Morastöðum | 8,15 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
10 | Matthías Sigurðsson | IS2010265314 Magnea frá Staðartungu | 8,21 | IS2024FAK216 – Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR) |
Unglingaflokkur – 10 efstu
# | Knapi | Hross | Tími | Mót |
1 | Dagur Sigurðarson | IS2012282581 Tromma frá Skúfslæk | 7,34 | IS2024GEY163 – Suðurlandsmót yngri flokka – Geysir |
2 | Róbert Darri Edwardsson | IS2015281990 Krafla frá Syðri-Rauðalæk | 7,40 | IS2024HOR112 – Íslandsmót barna og unglinga – 2024 |
3 | Ragnar Snær Viðarsson | IS2010186505 Ópall frá Miðási | 7,67 | IS2024HOR112 – Íslandsmót barna og unglinga – 2024 |
4 | Þórhildur Lotta Kjartansdóttir | IS2014186442 Þjálfi frá Búð | 7,70 | IS2024GEY163 – Suðurlandsmót yngri flokka – Geysir |
5 | Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir | IS2007265005 Embla frá Litlu-Brekku | 7,77 | IS2024HOR112 – Íslandsmót barna og unglinga – 2024 |
6 | Ragnar Snær Viðarsson | IS2011186003 Stráksi frá Stóra-Hofi | 8,01 | IS2024FAK192 – Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR (WR) |
7 | Lilja Rún Sigurjónsdóttir | IS2013258700 Frekja frá Dýrfinnustöðum | 8,02 | IS2024HOR112 – Íslandsmót barna og unglinga – 2024 |
8 | Unnur Rós Ármannsdóttir | IS2015287891 Næturkráka frá Brjánsstöðum | 8,05 | IS2024GEY163 – Suðurlandsmót yngri flokka – Geysir |
9 | Gabríel Liljendal Friðfinnsson | IS2011155021 Jökull frá Stóru-Ásgeirsá | 8,22 | IS2024HOR112 – Íslandsmót barna og unglinga – 2024 |
10 | Hjördís Halla Þórarinsdóttir | IS2007258558 Gullbrá frá Lóni | 8,37 | IS2024HOR112 – Íslandsmót barna og unglinga – 2024 |