Skráning hafin á hestaíþróttamót UMSS
Skráning er hafin á Opið hestaíþróttamót Ungmennasambands Skagafjarðar sem verður haldið á Sauðárkróki sunnudaginn 15. maí nk.
„Keppt verður í öllum hefðbundnum hesta íþróttagreinum ásamt létt tölt T7 (hægt og frjáls ferð) og létt fjórgang V5 (beðið um frjáls ferð á tölti, hitt eins) ef næg þáttaka næst.
Við skráningu þarf að gefa upp nafn og kennitölu knapa, nafn og fæðingarnúmer hests og keppnisgrein og uppá hvaða hönd keppandinn vill ríða.
Senda skráningu á [email protected]. Skráningu lýkur fimmtudaginn 12. maí. Skráningargjald er 3.000 kr fyrir fyrstu skráningu en 1.000 kr á næstu skráningar hjá sama knapa. Leggja skal inn á reikning UMSS: 310 – 26 – 1997. Kt: 670269-0359 skýring: nafn á hesti,“ segir í tilkynningu frá Hestaíþróttaráði Skagafjarðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH