Milljón fra Bergkåsa hæst dæmda norsk fædda hrossið
Nú þegar kynbótasýningum er lokið um allan heim er gaman að renna yfir kynbótaárið og fá smá mynd á kynbótastarf ársins í mismunandi aðilarlöndum FEIF. Byrjum á Noregi en þar voru haldnar þrjár kynbótasýningar og á þessum sýningum voru sýnd 52 hross og hlutu 40 af þeim fullnaðardóm.
Í ár voru sýnd 36 hross sem fædd voru í Noregi. Flest voru þau í flokki 7 vetra og eldri en tveir fjögurra vetra stóðhestar voru sýndir, sex fimm vetra hross og níu sex vetra hross. Meðaltal aðaleinkunnar var 7,76.
Hæsta dóminn hlaut Milljón fra Bergkåsa en hún hlaut fyrir sköpulag 8,32 og fyrir hæfileika 8,54 sem gerir 8,46 í aðaleinkunn. Hún hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt og samstarfsvilja. Milljón er átta vetra undan Framherja frá Flagbjarnarholti og Skímu fra Bujord. Liv Runa Sigtryggsdóttir er eigandi og ræktandi Milljón en það var Elvar Þormarsson sem sýndi hana.
Næst hæsta hrossið var einnig fra Bergkåsa og undan Framherja frá Flagbjarnarholti en það er hún Framsýn fra Bergkåsa sem hlaut fyrir sköpulag 8,07 og fyrir hæfileika 8,38 sem gerir 8,27 í aðaleinkunn. Móðir Framsýnar er Ímynd fra Bergkåsa en ræktendur og eigendur eru Sigtryggur Benediktsson og Elisabeth Saga. Sýnandi var Elvar Þormarsson.
Hér eru efstu tíu norsk fæddu hrossin sem sýnd voru á árinu:
IS númer | Hross | Uppruni | Ae. | Faðir | Móðir |
NO2016208079 | Milljón | Bergkåsa | 8.46 | Framherji Flagbjarnarholti | Skíma Bujord |
NO2016208078 | Framsýn | Bergkåsa | 8.27 | Framherji Flagbjarnarholti | Ímynd Bergkåsa |
NO2020111063 | Frami | Kolneset | 8.19 | Framherji Flagbjarnarholti | Skerpla Kolneset |
NO2018211019 | Álfadís | Kolneset | 8.18 | Álfasteinn Selfossi | Skerpla Kolneset |
NO2019211004 | Samba | Fossan | 8.11 | Birkir Fossan | Skjóða Selfossi |
NO2014212056 | Eydís | Vikamyr | 8.05 | Oliver Kvistum | Tandra Ragnheiðarstöðum |
NO2018211076 | Stemning | Skarstad | 8.05 | Þráður Þúfu í Landeyjum | Stjerna Kolnes |
NO2017208112 | Gloría | Bergkåsa | 8.05 | Þráður Þúfu í Landeyjum | Ímynd Bergkåsa |
NO2016211130 | Stella | Kolneset | 8.03 | Hörður Kolneset | Skutla Vestri-Leirárgörðum |