Viltu taka þátt í Hestaþorpi á Hestadögum í Reykjavík?
Hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu Andvari, Gustur, Hörður, Fákur, Sörli og Sóti hafa skipulagt fjölbreytta dagskrá á Hestadögum í Reykjavík sem fram fer daganna 28. mars til 2. apríl.
Á lokadegi hátíðarinnar, laugardaginn 2. apríl, verður mikið um dýrðir. Dagskráin hefst með skrúðgöngu hestamannafélaganna upp Laugaveginn og sem leið liggur í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn í Laugardal. Þar verður sett upp Hestaþorp með fjölbreyttri dagskrá, þar má nefna gangtegundasýningu, járningasýningu, hestateymingar og ýmislegt handverk verður boðið til sölu. Lokapunktur hátíðarinnar verður ístöltið „Þeir allra sterkustu“ sem fer fram í Skautahöllinni í Reykjavík um kvöldið. Þar munu margir af sterkustu knöpum og hestum mæta til leiks.
Þeir aðilar sem hafa áhuga á að vera með í Hestaþorpi á laugardeginum 2. apríl geta haft samband við Ingibjörgu á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar og dagskrá Hestadaga í Reykjvík má finna á heimasíðu hátíðarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH