Jóhanna Margrét íþróttamaður Mána

  • 6. desember 2011
  • Fréttir
Jóhanna Margrét íþróttamaður Mána

Jóhanna Margrét Snorradóttir var kjörin íþróttamaður Mána á aðalfundi félagsins 22. nóvember sl.

 
„Jóhanna Margrét Snorradóttir náði mjög  góðum árangri á árinu 2011.  Hún hefur verið að standa sig mjög vel undanfarin ár og er hvarvetna til fyrirmyndar og stundar sína íþrótt miklum þrótti og metnaði.  Hennar helsti árangur á árinu sem nú er senn á enda er: Hún vann unglingaflokkinn á Landsmótinu með eftirminnilegum hætti, Íslandsmeistari í fimmgang unglinga, Suðurlandsmeistari í Fjórgangi og fimmgangi unglinga.
 
Stjórn Mána óskar Jóhönnu Margréti innilega til hamingju með árangurinn og titilinn,“ segir í frétt frá Mána og fylgir með listi yfir glæsilegan árangur Jóhönnu Margrétar í ár:
 
 
Vetramót 
3.sæti
 
Kristjánsmótið 
1. sæti
 
Vetramót 
1.sæti
 
Iþróttamót Mána 
Tölt – 2.sæti 
Fjórgangur – 3.sæti, 
Fimmgangur – 3-4 sæti
 
Firmakeppni
Unglingaflokkur – 2. sæti
B-flokkur – 1.sæti
Parareið – 2.sæti
 
Mánaþing 
Unglingaflokkur – 1. sæti 
Tamningaflokkur – 4.sæti
 
Landsmót
1. sæti
 
Íslandsmót 
Fimmgangur – 1.sæti
Fjórgangur – 3.sæti
 
Suðurlandsmót
Fjórgangur – 1.sæti
Fimmgangur – 1.sæti

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link