Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Meistaradeildin semur við Lífland

  • 2. nóvember 2024
  • Tilkynning Fréttir

Sóley Margeirsdóttir formaður stjórnar Meistaradeildar og Arnar Þórisson forstjóri Líflands handsala samninginn.

Meistaradeildin í hestaíþróttum hefur endurnýjað samning sinn við Lífland um það að vera aðalstyrktaraðili deildarinnar fyrir árið 2025.

Lífland er leiðandi fyrirtæki á sviði landbúnaðar og hefur lengi verið öflugur bakhjarl Meistaradeildarinnar. Samstarf Meistaradeildarinnar og Líflands hefur ávallt verið til fyrirmyndar og er þeim þakkað það traust sem þeir sýna deildinni með endurnýjuðum samningi.

Meistaradeild Líflands árið 2025 lofar glæsilegri keppni í vetur þar sem þeir allra bestu munu etja kappi og umgjörðin verður bæði glæsileg á staðnum og heima í stofu. Ekki láta þetta fram hjá ykkur fara og við hlökkum til að sjá ykkur í janúar þegar keppni hefst í fjórgangi fimmtudaginn 23. janúar.

Við þökkum Líflandi enn og aftur fyrir þeirra ómetanlega stuðning og hlökkum til áframhaldandi samstarfs segir í tilkynningu frá Stjórn Meistaradeildar Líflands.

Dagsetningar 2025*
23. janúar – Fjórgangur
6. febrúar – Slaktaumatölt
21. febrúar – Fimmgangur
14. mars – Gæðingalist
29. mars – PP1 og 150m skeið
4. apríl – Tölt og flugskeið
*birt með fyrirvara um breytingar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar