Firmakeppni Léttfeta

  • 13. maí 2011
  • Fréttir
Firmakeppni Léttfeta

Firmakeppni Léttfeta verður haldin á félagssvæði Léttfeta, Fluguskeiði, á Sauðárkróki sunnudaginn 22. maí. Skráning fer fram samdægurs í Tjarnarbæ milli kl. 13–13.30 en keppni hefst kl. 14. 

 
Keppt verður í Barnaflokki  (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokki (14 – 17  ára á árinu), Ungmennaflokki (18 -21 ára á árinu), Kvennaflokki og Karlaflokki. Verðlaunaafhending og kaffiveitingar að lokinni keppni í Tjarnabæ.
 
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd hestamannfélagsins Léttfeta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link