Kynningarfundur vegna landsliðsverkefna
Boðað verður til kynningarfundar landsliðsnefndar og nýrra liðsstjóra um verkefni landsliðsins í Austurríki 2011. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. mars kl. 20 í félagsheimili Fáks. Hér gefst hestamönnum tækifæri á að kynna sér betur verkefni nýrra landsliðsstjóra en mælst er til þess að þeir sem hafa áhuga á að undirbúa sig fyrir úrtöku láti sjá sig.
Fundarefni:
– Lykill að vali íslenska landsliðsins
– Reglur og breytingar á keppnisreglum
– Úrtökustaður
– Mótsstaður HM í Austurríki
– Ferðatilhögun
Boðið verður upp á kaffi.
Sambærilegur fundur verður haldinn í Top Reiter höllinni á Akureyri þann 30. mars.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH