Skráning á WR mót framlengt
Hægt verður að skrá í Opna Íþróttamót Mána fram yfir helgi. Tekið er á móti skráningum á netfangið [email protected].
Skráningargjald er 3.500 kr. á grein. Mótið fer fram 15. – 17. apríl og keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og flokkum ef næg þátttaka næst en annars verða flokkar sameinaðir.
Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, IS númer hests, keppnisgrein, flokkur og upp á hvora hönd er riðið í hringvallagreinunum. Þeir sem hringja eða senda póst þurfa að láta kortanúmer og gildistíma korts fylgja.
Upplýsingar í símum:
695-0049
866-0054
861-0012
861-2030
848-6973
869-3530
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH