Annað tölublað Eiðfaxa komið út
Annað tölublað Eiðfaxa er komið út og má nálgast það á rafrænu formi hér.
Meðal efnis er viðtal við knapa ársins Árna Björn Pálsson, sem er að sönnu metnaðarfullur vinnuþjarkur. „Besta hvatningin fyrir mig er þegar einhver segir að ég geti ekki eitthvað – þá verð ég að gera það,“ segir hann í viðtalinu.
Þorvaldur Kristjánsson skrifar grein um tengsl byggingar og hæfileika. Brot úr greininni má nálgast hér.
Arinbjörn Jóhannsson í Brekkulæk er frumkvöðull á sviði markaðssetningar íslenska hestsins í Þýskalandi. Hann hefur marga fjöruna sopið og hefur m.a. tekið þátt í stórsýningunni Equitana síðan árið 1985. Hann telur marga ónýtta möguleika í útbreiðslu íslenska hestsins í Þýskalandi.
Áttu klárgengan, latann, örann eða bundinn reiðhests? Í blaðinu má lesa auðveldar lausnir á algengum viðfangsefnum þjálfunar reiðhrossa.
Hrossaræktarbúið Skriða hefur vakið athygli fyrir hágeng og fim keppnishross. Eiðfaxi leit í heimsókn til fjölskyldunnar sem stundar bæði hrossarækt og sauðfjárrækt af miklum móð.
Blaðið mun berast áskrifendum undir lok vikunnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH