Miðasala á Meistaradeild

  • 23. janúar 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Keppt verður í fjórgangi á fyrsta móti Meistaradeildarinnar. Á myndinni er Artemisia Bertus á Óskari frá Blesastöðum 1A en þau voru sigursæl í fjórgangsgreinum í fyrra.

Forsala aðgöngumiða fyrir fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum 2013 er hafin

Forsala aðgöngumiða fyrir fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum 2013 er hafin. Mótið hefst klukkan 18:30 á fimmtudag 31. janúar með veglegri opnunarhátíð.  Fyrsta mót ársins er fjórgangur. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu hestum landsins verði skráðir til leiks. Knapar mæta á fyrstu æfingar í Ölfushöllinni um n.k. helgi og þá má búast við mikil tilþrif.  Gera má ráð fyrir harðri baráttu allt frá fyrstu keppni.

Í tilefni 10 ára afmælis Meistaradeildar í hestaíþróttum verður blásið til veglegrar opnunarhátíðar þar sem liðin og styrktaraðilar verða kynnt, Guðni Ágústsson ávarpar gesti, Brokkkórinn mætir og svo kemur Ingó veðurguð og tekur nokkur lög.  Lofar góðu um frábært kvöld og spennandi keppni.

Aðgangseyrir á mótið er krónur 1.500 og krónur 500 fyrir börn yngri en 12 ára. Miðarnir eru til sölu í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi, Selfossi. Á sömu stöðum er einnig hægt að kaupa ársmiða á deildina en þeir kosta krónur 5.000.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link