Sterkir hestar á ráslista skeiðgreina
Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum fer fram að Ármóti núna á laugardaginn og hefjast leikar kl. 12:00. Gera má ráð fyrir harðri keppni í báðum greinum þar sem margir sterkir hestar eru skráðir til leiks.
Sigurvegarinn í gæðingaskeiði í fyrra, Viðar Ingólfsson, Hrímnir, á Má frá Feti mun reyna að verja titilinn en gera má ráð fyrir að Íslandsmeistarinn í gæðingaskeiði í fyrra Haukur Baldvinsson, Auðsholtshjáleiga, á Fal frá Þingeyrum, stefni á að ná í gullið. Eins eru mörg önnur þekkt nöfn á ráslistanum sem munu eflaust berjast hart við þessa tvo þannig að gera má ráð fyrir harðri baráttu um gullið í gæðingaskeiði.
Í 150m skeiði má einnig gera ráð fyrir æsispennandi keppni þar sem 7 af 10 fljótustu vekringum ársins 2011 eru skráðir til leiks. Veðurspáin er hagstæð fyrir laugardaginn þannig að það má gera ráð fyrir góðum tímum og æsispennandi keppni í skeiði á þessu fyrsta skeiðmóti ársins.
Gæðingaskeið
Nr Keppandi Lið Hestur
1 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Vera frá Þóroddsstöðum
2 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Trostan frá Auðsholtshjáleigu
3 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Korði frá Kanastöðum
4 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Hringur frá Fossi
5 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Friður frá Miðhópi
6 Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Týr frá Litla-Dal
7 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Flosi frá Keldudal
8 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Bergþór frá Feti
9 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Minning frá Ketilsstöðum
10 Viðar Ingólfsson Hrímnir Már frá Feti
11 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Logadís frá Syðra-Garðshorni
12 Elvar Þormarsson Spónn.is Gjafar frá Þingeyrum
13 John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Ás frá Ármóti
14 Ragnar Tómasson Árbakki / Norður-Götur Gríður frá Kirkjubæ
15 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Kiljan frá Steinnesi
16 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Völur frá Árbæ
17 Artemisia Bertus Hrímnir Dynfari frá Steinnesi
18 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Ársól frá Bakkakoti
19 Sigurður Sigurðarson Lýsi Freyðir frá Hafsteinsstöðum
20 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Fálki frá Tjarnarlandi
21 Haukur Baldvinsson Auðsholtshjáleiga Falur frá Þingeyrum
150m skeið
Nr Riðill Keppandi Lið Hestur
1 1 Haukur Baldvinsson Auðsholtshjáleiga Everest frá Borgarnesi
2 1 Daníel Ingi Smárason Hrímnir Blængur frá Árbæjarhjáleigu
3 2 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Hnikar frá Ytra-Dalsgerði
4 2 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Gjálp frá Ytra-Dalsgerði
5 3 Elvar Þormarsson Spónn.is Blossi frá Skammbeinsstöðum
6 3 Artemisia Bertus Hrímnir Perla frá Skriðu
7 4 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Ársól frá Bakkakoti
8 4 Sigurður Sigurðarson Lýsi Drift frá Hafsteinsstöðum
9 5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Lilja frá Dalbæ
10 5 Ragnar Tómasson Árbakki / Norður-Götur Gríður frá Kirkjubæ
11 6 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Óðinn frá Búðardal
12 6 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Veigar frá Varmalæk
13 7 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Gjósta frá Prestsbakka
14 7 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Zelda frá Sörlatungu
15 8 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Vera frá Þóroddsstöðum
16 8 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Smári frá Kollaleiru
17 9 Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Prins frá Efri-Rauðalæk
18 9 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Funi frá Hofi
19 10 Viðar Ingólfsson Hrímnir Snarpur frá Nýjabæ
20 10 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Birtingur frá Selá
21 10 Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Felling frá Hákoti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH