Sigurður Matthíasson leiðir eftir forkeppni – video

  • 5. maí 2011
  • Fréttir
Sigurður Matthíasson leiðir eftir forkeppni - video

Reykjavíkurmót Fáks hófst í morgun með forkeppni í fimmgangi meistaraflokki.

Sigurður Vignir Matthíasson stendur efstur á Mætti frá Leirubakka en á hæla hans koma Sólon Morteins á Fræg frá Flekkudal og Viðar Ingólfsson á Má frá Feti. Má því búast við spennandi úrslitum í fimmgangi meistaraflokki á sunnudaginn.

Eftir hádegi halda leikar áfram í fimmgangi og svo er hefst fjórgangur unglinga kl. 17 og fjórgangur ungmenna kl. 19:40.

Allir að mæta í dalinn og sjá flotta hesta og glæsta gæðinga.

Meðfylgjandi er myndbrot af Sigurði og Mætti í forkeppninni.

Úrslit forkeppni Meistaraflokks urðu eftirfarandi:
1. Sigurður Vignir Matthíasson / Máttur frá Leirubakka   7,43        
2. Sólon Morthens / Frægur frá Flekkudal             7,10
3. Viðar Ingólfsson / Már frá Feti                               7,00 
4. Haukur Baldvinsson / Falur frá Þingeyrum        6,93        
5. Eyjólfur Þorsteinsson / Ögri frá Baldurshaga   6,87        
6. Edda Rún Ragnarsdóttir / Hreimur frá Fornusöndum  6,83        
7. Jakob Svavar Sigurðsson / Alur frá Lundum II  6,70
8. Pim Van Der Slot / Draumur frá Kóngsbakka   6,53        
9. Ragnheiður Þorvaldsdóttir / Hrafnagaldur frá Hvítárholti          6,30

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link