Sölusýning í Hestheimum

  • 6. september 2011
  • Fréttir
Sölusýning í Hestheimum

Sölusýning verður haldin í Hestheimum sunnudaginn 11. september næstkomandi.

„Sölusýningar í Hestheimum hafa verið haldnar við góðan orðstýr í 11 ár! Mikill fjöldi góðra gesta og söluhesta eru skýringar á vinsældum sölusýninganna. Alls verða 3 sölusýningar fyrir áramót: 11. september, 9. október og 6. nóvember. Byrjað verður á stuttum fyrirlestrum og hefjast þeir kl 13:30. Eru þeir báðir um frumtamningu. Fyrsta nálgun með Ólafi Þórissyni Miðkoti og fyrstu skrefin með Tómasi Snorrasyni. Sölusýning hefst síðan kl 14:00.
 
Skráningar skulu berast á netfangið [email protected] fyrir kl 23:59 fimmtudagskvöld 8.sept. Taka skal fram: Nafn , lit og IS-númer hests, einnig nafn, símanúmer og netfang eiganda/umráðamanns , nafn knapa, í hvaða verðflokk hesturinn fer, ásamt lýsingu.  Skráningargjald er 3500 kr á hest og skal greiðast inn á reikning 0308-13-300725 með kt:031277-3619,“ segir í tilkynningu frá söluhópi Hestheima.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link