Fjórgangskeppni á Mið-Fossum
Hestamannafélagið Grani stendur fyrir fjórgangskeppni að Mið-Fossum fimmtudaginn 19. febrúar næstkomandi. Mótið hefst kl. 20.
Skráning stendur yfir til miðnættist 18. febrúar. Hægt er að ská sig með því að senda póst á veffangið [email protected]. Skráningargjald er 1000 kr. á hest.
Fram þarf að koma; nafn knapa og hests, aldur og ætterni, litur og upp á hvora hönd skal riðið. Keppt verður í 1. og 2. flokki.
Frítt er inn á mótið og sjoppa á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH