Hófadynur Geysis
Hófadynur Geysis er fjögurra móta röð þar sem einstaklingur safnar stigum í gegn um mótaröðina. Tíu efstu í hverri grein fá stig frá einum og upp í tólf. Einungis verða riðin A-úrslit í fjórgangi, fimmgangi og tölti og fá knapar stig miða við niðurstöður úr úrslitum. Knapar í sjötta til tíunda sæti fá stig miða við árangur þeirra úr forkeppni.
I töltfimi verður riðin ein umferð án úrslita. Sama kvöld og töltfimin er verður riðið skeið í gegn um höllina.
Verðlaun fyrir stigahæsta knapann eru 25.000 kr.
Mótið er opið, keppt í einum flokki og tveir inn á í einu í forkeppni. Fimm dómarar dæma og dettur úr efsta og lægsta einkunn.
Fyrsta mótið er fjórgangur, miðvikudagskvöldið 26. febrúar og hefst klukkan 18 í Rangarárhöllinni.
Skráning er hafin á heimasíðu Geysis, wwwhmfgeysir.is, og líkur á miðnætti á mánudagskvöldi þann 24.febrúar.
Ef upp koma vandræði við skráningu má hafa samband við Magnús Inga Másson í síma 899-3917. Skráningargjald er 4.000kr.
Aðgöngumiði kostar 1.000kr og er einnig happadrættismiði. Verður dregið út á hverju keppniskvöldi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH