Sótafélagar sjást í myrkrinu
„Nú nýverið fengu Sótafélagar að gjöf endurskinsvesti sem Tryggingamiðstöðin var svo elskuleg að láta okkur í té. Krummi í TM afhenti Steinunni formanni vestin við hátíðlega athöfn.
Eins og við vitum öll að þá er afar mikilvægt að við sjáumst vel þegar við erum á útreiðum einkum og sér í lagi í svartasta skammdeginu. Dökkklæddur knapi á dökkum hesti sést afar illa á dimmum vetrarkvöldum og þó svo okkur finnist við vera úti í sveit hérna á Álftanesinu megum við ekki gleyma því að hérna getur verið töluverð umferð. Það er í okkar valdi að gera okkur sýnileg fyrir ökumönnum og eins er gott að vera vel sýnilegur öðrum knöpum þegar við erum að mætast á reiðstígunum okkar.
Við þökkum Tryggingamiðstöðinni af alhug fyrir þessa góðu gjöf og hvetjum um leið alla til að nota vestin. Við sjáumst ekkert betur ef vestið er skilið eftir heima í hesthúsi.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Krummi afhenti Steinunni formanni vestin í hesthúsi formannsins.
Vestunum verður dreift í hesthúsin á næstu dögum,“ segir í tilkynningu frá Sótafélögum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH