Dregið úr Áskrifendahappdrætti Eiðfaxa TV

  • 7. febrúar 2025
  • Sjónvarp Fréttir
Frábært áhorf var á útsendinguna okkar og þökkum við fyrir okkur!

Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram í gær í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Í hléinu eftir forkeppni var dregið í Áskrifendahappdrætti Eiðfaxa TV sem mun verða fastur liður í HorseDay höllinni í vetur.

Þrír heppnir áskrifendur hlutu vinning. Rakel Eir Ingimarsdóttir fékk 20.000 kr. gjafabréf frá Líflandi og Christina Sørensen og Anna Agerup unnu sitthvorn miðann á Landsmót á Hólum 2026.

Frábært áhorf var á útsendinguna okkar og þökkum við fyrir okkur! Næst á dagskrá er bein útsending frá Meistaradeild Líflands og æskunnar sem fer fram á sunnudaginn kl. 12:00.

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á úrdráttinn frá því í gær.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar