Uppsveitadeild Íshesta hefst á föstudaginn
„Ég vil vekja athygli á Uppsveitadeild Íshesta sem hefst í reiðhöllinni á Flúðum á föstudag næstkomandi og einnig hefur reiðhöllin komið upp facebook prófil þar sem hægt verður að fylgjast með starfi og viðburðum. Uppsveitadeild Íshesta hefst föstudaginn 22.febrúar þegar 7 lið skipuð 21 af bestu knöpum uppsveitanna leiða saman hesta sína í fjórgangi í Reiðhöllinni á Flúðum.
Í ár náðist samkomulag við Íshesta.ehf um stuðning við deildina og er það mikil lyftistöng og viðurkenning á gæði knapa og hrossa sem mæta til leiks.
Þetta er fjórða árið sem deildin er starfrækt en á þeim tíma hefur Uppsveitadeildin sannað sig og náð miklum vinsældum í mótahaldi í uppsveitum Árnessýslu yfir veturinn. Uppsveitadeildin er reiðhöllinni á Flúðum mjög mikilvæg og hefur vakið athygli á henni en reiðhöllin hefur stórbætt aðstöðu fyrir hestamennsku á félagssvæði hestamannafélaganna Loga, Trausta og Smára.
Mótin eru á föstudagskvöldum og hefur myndast góð stemning í kringum mótin sem jafnan eru vel sótt af heimamönnum sem styðja sín lið en einnig öðrum sem koma lengra að. Dómarar og aðrir sem eru lengra að komnir hafa hrósað skipulagningu og hestakosti og telja vel að þessum mótum staðið.
Þessi keppni hefur hleypt nýju lífi í hestamannafélögin í uppsveitunum þar sem hestamannafélögin starfa meira saman en um leið ýtt undir landlægan hrepparíg og hollan keppnisanda. Tilgangurinn er að vekja athygli á blómlegu starfi í hestamennsku í uppsveitunum þar sem mörg af betri hrossabúum landsins eru að finna.
Veturinn 2013 eru 3 mót fyrirhuguð þar sem 7 lið með 3 knöpum og liðstjóra keppa í fjórgangi, fimmgangi, tölti og fljúgandi skeiði. Mótin hefjast alltaf klukkan 20.00 og er aðgangseyrir 1000 kr
Dagskráin:
22.feb Fjórgangur
15.mars Fimmgangur
19.apríl Tölt og skeið
Hægt er að fylgjast með Uppsveitadeild Íshesta og öðru starfi reiðhallarinnar á facebook síðu Reiðhallarinnar á Flúðum, “ segir í tilkynningu frá Einari Á.E. Sæmundssyni
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH